top of page

Erlingur Freyr

Ég heiti Erlingur Freyr Thoroddsen, fæddur og uppalinn í Hlíðunum. Frá því að ég gat fyrst haldið á litum notaði ég þá til þess að tjá mig og það sem leynist í kollinum á mér. Mamma og pabbi voru mjög dugleg að sýna mér landið þegar ég var lítill. Alltaf fann ég eitthvað stórkostlegt sem ég þurfti hreinlega að teikna eða mála. Oft gat ég ekki beðið eftir að komast út úr bílnum eingöngu til þess að teikna eitthvað sem ég sá á leiðinni. 


Þessi vefur sýnir þau verk sem ég hef unnið á síðastliðnu ári í grafískri miðlun. Ég held að ég hefði ekki geta valið nám sem hentar mér betur en það sem ég er að útskrifast úr núna.

Hér fyrir neðan má sjá allskonar sem ég hef gert í gegnum tíðina.

Erlingur-mynd.jpg

Endilega skiljið eftir undirskrift og lítil skilaboð í gestabókinni hér fyrir neðan!

bottom of page